Í Dagverðardal í Skutulsfirði hefur M11 unnið að skipulagi og þróun heildstæðrar frístundabyggðar fyrir allt að 39 hús, auk hönnunar frístundahúsanna. Við mótun skipulagsins var lögð áhersla á tengsl byggðarinnar við landslag og náttúrulegar aðstæður svæðisins.
Byggingar eru hannaðar sem módular hús. Húsin eru samsett í tveimur til þremur hlutum og standa á súlum til að raska sem minnst náttúrunni umhverfis húsin.
Fyrstu þrjú húsin voru reist árið 2025 og sex hús til viðbótar voru reist 2026.