Við Gjúkabryggju 8 hannar M11 fjögur fjölbýlishús með samtals 110 íbúðum. Húsin mynda samstæða heild en eru brotin upp með fjölbreyttu formi og jarðbundnu lita- og efnisvali. Lögð er áhersla á að stór hluti íbúðanna henti fyrstu kaupendum og verði hagkvæmur kostur á húsnæðismarkaði.
Aðaluppdrættir voru samþykktir í júní 2026 og verkefnið er nú á lokastigi hönnunar.